(English below)
Skrifstofa ÖÍ ætlar í sumarfrí fyrstu 2 vikurnar í ágúst.
Það verður því lokað 2. - 13. ágúst og við opnum aftur mánudaginn 16. ágúst.
The office will be closed the first 2 weeks in August.
We will open again on Monday, 16th of August.
Samkvæmt frétt Stjórnarráðsins sem kom út 13.apríl verður ökukennsla leyfð að nýju frá og með fimmtudeginum 15. apríl.
Bann við ökukennslu tekur gildi á miðnætti í kvöld og gildir það í 3 vikur. Frétt vegna hertra sóttvarnaaðgerða má finna á vef Stjórnarráðsins hér
Ökukennarafélag Íslands hefur fengið nýjan vef, en enn er verið að vinna í honum.
Námsefni á vefnum er ekki aðgengilegt sem stendur og eru verðin þar inni ekki rétt. Hægt er að kaupa námsbókina Út í umferðina á gömlu vefversluninni á slóðinni www.vefverslun.aka.is
Við viljum benda á frétt sem var að birtast á vef Samgöngustofu um mat heilbrigðisráðuneytisins að verklegt ökunám sé óheimilt um land allt vegna COVID-19.
Tekið af vef Samgöngustofu:
Ný reglugerð heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum og hertar aðgerðir tók gildi 20. október og gildir til og með 10. nóvember 2020. Ýmis starfsemi sem krefst snertingar eða hætta er á snertingu á milli fólks eða mikilli nálægð, eða þar sem notkun á sameiginlegum búnaði getur haft smithættu í för með sér er áfram óheimil.
Það er mat heilbrigðisráðuneytis að verklegt ökunám, þar sem ekki er unnt að viðhalda 2 metra nálægðartakmörkun, er óheimilt á gildistíma reglugerðar nr. 958/2020. Það skal tekið fram að framangreindar takmarkanir taka ekki til aðstæðna þar sem smithætta vegna nándar er ekki til staðar eða unnt er að virða 2 metra nálægðartakmörkun, t.d. ef ökukennari er ekki í sama ökutæki og nemandinn.
Samkvæmt reglugerð heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum vegna farsóttar gilda enn sömu reglur um ökukennslu.
Til og með 3. nóvember 2020 er ökukennsla óheimil á höfuðborgarsvæðinu.
Þau sveitafélög sem falla undir höfuðborgarsvæðið er Reykjavíkurborg, Seltjarnarnesbær, Mosfellsbær, Kjósahreppur, Hafnarfjarðarkaupstaður, Garðabær og Kópavogsbær.
Fyrir utan höfuðborgarsvæðið er ökukennsla heimil, en skylda er að nota andlitsgrímur þar sem ekki hægt er að tryggja 2 metra fjarlægð.
ATH! Öll ökukennsla á höfuðborgarsvæðinu er óheimil, þannig ekki er leyfilegt fyrir ökukennara sem starfa utan þess svæðis að koma með ökunema á höfuðborgarsvæðið og taka tíma þar.
Reglugerðir um sóttvarnaráðstafanir sem taka gildi 20. október
Vegna banns Heilbrigðisráðherra er verkleg ökukennsla á höfuðborgarsvæðinu óheimil þar sem nálægð er minna en 2 metrar.
Bannið tekur gildi 7. október og stendur til og með 19. október.
Ökuskóli 3 hefur lokað á námskeið frá og með 7. október þar til aðstæður breytast.
Ökupróf
Verkleg próf falla niður frá og með 7.október, en unnt verður að halda bóklegum prófum áfram með takmörkunum.
Þó svo að bannið gildi einungis á höfuðborgarsvæðinu þá viljum við biðja ökukennara utan höfuðborgarsvæðisins að gæta sérstaklega vel að sér, hún er lúmsk þessi veira.
Tilkynning frá Heilbrigðisráðherra má finna hér.
Aukinn áhugi er meðal ökumanna að ná sér í kerruréttindi þessa dagana (BE réttindi).
Þeir sem tóku bílprófið, B réttindi, fyrir 15. ágúst 1997 fengu sjálfkrafa B og BE réttindi.
B réttindi:
Réttindi til að aka bifreið sem er skráð að hámarki 3500 kg að heildarþyngd og draga eftirvagn að auki sem er skráður að hámarki 750 kg að heildarþyngd.
B réttindi:
Gefa að auki réttindi til að aka bifreið og eftirvagn sem eru samtals 3500 kg að skráðri heildarþyngd.
BE réttindi:
Gefa réttindi til að aka bifreið sem er skráð að hámarki 3500 kg að heildarþyngd og draga eftirvagn að auki sem er skráður að hámarki 3500 kg að heildarþyngd.
Leyfð heildarþyngt bifreiðar og eftirvagns er því alls 7000 kg.
ATH óheimilt er að draga þyngri eftirvagn en bifreiðin má draga. Í skráningarskírteini bílsins kemur fram hversu þungan eftirvagn bifreiðin má draga.
Þann 12. október 2019 hélt Landsbjörg ráðstefnuna Slysavarnir, þar sem ökukennarinn Þórður Bogason hélt fyrirlestur um viðhorfsmótun ungra ökumanna.
Fyrirlesturinn var 43 mínútur að lengd og hægt er að sjá hann hér.
Vegna banns heilbrigðisráðherra er ökukennurum óheimilt að sinna verklegri ökukennslu þar sem nálægð er minna en 2 metrar milli kennara og nemanda.
Bannið tekur gildi frá og með miðnætti aðfaranótt þriðjudagsins 24. mars.
Ökuskóli 3 hefur lokað á námskeið frá og með mánudeginum 23. mars þar til aðstæður breytast.
Ökupróf
Verkleg próf falla niður frá og með þriðjudeginum 24. mars en unnt verður að halda bóklegum prófum áfram þar til annað kemur í ljós.
Innskráning